sunnudagur, september 09, 2012
Daglegt líf: Dekurdagar um helgina
Það eru eins konar dekurdagar núna um helgina hjá Signýju og Hugrúnu. Þær fengu að gista hjá Beggu á föstudaginn, fóru svo í afmæli til Almars daginn eftir, haldið í ævintýragarðinum, og fengu þar á eftir að gista hjá Ásdísi í fyrsta skipti. Þau Ásdís og Toggi stilltu þessu upp sem náttfatapartíi og það féll aldeilis í góðan jarðveg. Þær vildu helst ekki taka eftir mér þegar ég kom til að sækja þær áðan. Síðan fórum við út að leika, buðum Almari með, og erum aftur á leiðinni heim til hans á eftir í kaffiboð (fullorðins afmæli). Dekurdagar, eins og ég sagði.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli