þriðjudagur, mars 18, 2008

Pæling: 18 + 18 = 36

Ég er að átta mig á því fyrst núna að 36 er mjög flott tala. Kannski vegna þess að ég fæddist inn í hús númer átján, þann átjanda.

Annars er þetta búið að vera mjög ánægjulegur dagur. Byrjuðum með kaffiboði úti á verönd í yljandi vorsól. Ég lék mér að tveimur nýjum kökuuppskriftum í morgun, beint úr Gestgjafanum. Svokölluð kókoshvolfkaka sló í gegn (með pekanhnetum og súkkulaðikurli). Allir komu og fóru sáttir. Skemmtilegar gjafir og afslöppuð stemning, eins og það á að vera.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ strákur....

Kökurnar voru æði.... og ljúft og notalegt að koma til ykkar ....en þannig er það bara alltaf.....
Ljúf nærvera ykar allra það er ekki hægt að biðja um meira....
kv. Begga --frænka