mánudagur, desember 12, 2005

Fréttnæmt: Fæðing er farin af stað

Við Vigdís kíktum til ljósmóðurinnar upp úr hádegi í dag. Vigdísi hafði liðið mjög vel frá því við kíktum til hennar síðast. Núna kom ljósan hins vegar einbeitt til baka með þvagsýnið hennar því þar hafði greinst mikil eggjahvíta, sem er einn af mögulegum undanförum fæðingar. Við rétt höfðum ráðrúm til að skjótast heim en snöruðumst þaðan beint á meðgöngudeild. Eftir nánari skoðun og alls kyns sýni, og frekar stutta legu, er orðið nokkuð ljóst að héðan munum við ekki fara tvö ein.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

En spennandi!

Við hugsum til ykkar og sendum góða strauma. Gangi ykkur öllum sem allra best.

Nafnlaus sagði...

Frábært, baráttukveðjur! Við Margrét bíðum spennt eftir næstu fréttum.